Við minnum á einn stærsta leik Ensku Úrvalsdeildarinnar í vetur en hann er í dag. Allavega, við erum með allt klárt í hörku leik og borðin ykkar eru klár. Látið okkur vita hvenær þið mætið - Pantaðu borðið ykkar núna 558 5500 - Sport & Grill Smáralind.
Við minnum á einn stærsta leik Ensku Úrvalsdeildarinnar í dag. Allavega, við erum með allt klárt í hörku leik og borðin ykkar eru klár. Látið okkur vita hvenær þið mætið - Pantaðu borðið ykkar núna 558 5500 - Sport & Grill Smáralind.
Gunnleifur Gunnleifsson er að sigla inn í næsta tímabil með í markinu með Breiðablik. Afreksmaður sem við erum stolt að því að kalla fastagest hjá okkur á Sport&Grill. Hann vill að sjálfsögðu minna okkur öll á næsta Manchester City leik og það að við sýnum alla leikina þeirra hér.
Meistaradeildin í kvöld - fullt af leikjum og allir sýndir á 32 skjám og boltatilboðin góðu í fullum gangi
Frábær dagur hjá okkur í dag og breytingarnar að koma rosalega vel út finnst okkur.
Geggjaður Vegan borgari frá “Beyond Meat” í þróun á Olearys / Sport og Grill. Frábær matur pg engin kjöt-afsökun, bara góður matur. Verður á nýjum matseðli sem er að detta inn. Gaman að vera með alvöru rétti á seðli fyrir þá sem kjósa Vegan
Leikir helgarinnar eru ekki litlir og ekki litlausir. Sjáumst á Olearys um helgina, leikirnir byrja allir 16:30, pantiði borðið til öryggis. Liverpool gegn Tottenham, Norwich gegn Man United og Arsenal gegn Palace.
Boltabjór á 990,- kr. Sport & Grill ostborgari með frönskum, salati og Pepsi á 2.190,- kr.
Það er umferð í Evrópudeild meistarliða og fullt af frábærum leikjum þriðjudag og miðvikudag. Tottenham, Bayern Munchen, Juventus og Real Madrid eiga öll leik á þriðjudagskvöld sem byrja allir klukkan 19:00. Á miðvikudag er leikur kvöldins hjá okkur klárlega Genk - Liverpool sem byrjar klukkan 19:00. Við sýnum allar leiki Evrópukeppninnar, ef þinn leikur er ekki á þegar þú kemur þá bara læturðu vita og hann fer upp. Við erum með 32 risa sjónvörp og getum þannig haft 32 leiki í gangi ef sú staða kæmi einhvertíma upp. Pantaðu þitt borð og komdu í sigurliðið á Heimavelli Ella - SPORT & GRILL
Seems if you are a regular the service is great , but if you are a tourist the service people seem to morph into grumpy old xenophobes. It may be because Poland was losing to Senegal 🇸🇳. I think the waiter we had was Polish.
The food
Service and atmosphere
Game area for Dean was great �
Amazing restaurant!
The best
Vorum ein þarna á staðnum ég, mamma og tvær systur mínar og fengum leiðindar þjónustu, starfsmennirnir störðu á okkur mjög óþæginlega og voru rosalega fúlir eða virkuðu þannig allavegana. Ég pantaði mér Parmesan Chicken Wings sem voru súrir á bragðið og það átti að vera hvítlauksbragð af þeim líka en það var ekki og bað um að fá hvítlaukssósu í stað gráðostasósu en fékk allt aðra sósu en það og hún var ekki góð heldur. � fáið samt + fyrir poppið �
þetta er staðurinn minn gott fólk “this is your last beer og allt það” en það er stemningin - eigandinn er 10/10 og kjúklingavængirnir himneskir hipp hipp húrra fyrir olearys
Get mælt með þessum stað, að vísu bara búin að fara einu sinni en Caesar salatið með kjúklingi var mjög gott og þjónustan sömuleiðis mjög góð.
Algjör toppstaður. Vissi ekki að það væri á borgaranum eitthvað sem ég hefði ofnæmi fyrir, sagði þjóninum frá því, og ég fékk nýjan borgara á augabragði. Algjör toppþjónusta, og frábær matur! Ég kíki klárlega aftur til ykkar!
virkilega góður matur og frábær þjónusta. og ekki verra að geta horft á leikinn á meðan að maður borðar
Að bíða hálftíma eftir “hamborgara” sem Georg Bjarnfreðarson hefði getað sett saman með kjötfarsi. klárlega sænskur staður.
Gæðin og hráefnið í matnum samsvarar ekki verðinu. þvílikur viðbjóður.
P.s. Hver nær að brenna kjúkling í fajitas?
Fèkk mér Gourme Camebert hamborgara á þriðjudegi og kótilettuhlaðborð í dag miðvikudag og guð minn góður. Allt uppá 10. Þjónustan 100%. Klárlega staðurinn KV. Gísli
Takk fyrir einn besta 150gr borgara m/camembert og rauðlaukssultu. Mæli eindregið með að fólk prófi.
Mjög góður beikon graðostabörger með mjúkt brauð og fín þjónusta og gott andrúmsloft
Mæli með að prófa �
Fórum öll fjölskyldan í "sunnudagssteikina" og maturinn var mjög góður og stóð fyrir sínu. Allir meira en sáttir. Takk fyrir okkur. :)
Of dýr fyrir það sem þetta er. Maturinn ekki vondur en ekkert spes heldur og þjónustunni mjög ábótavant.
Labbaði framhjá í dag. Hvergi hægt að sitja án þessa að hafa fótbolta ofaní manni. Mun ekki koma.
Fràbær staður! Er búin að fara tvisvar. Mæli með chicken quesadilla og crispy chicken wings! Rifin eru líka góð og bernaise sósan sem ég fékk með frönskunum var sjúklega góð. �
Mjög góður matur í skemmtilegu umhverfi. Góð þjónusta og frábær tónlist. Vel heppnað í alla staði.
Fór um daginn með dóttur minni og skiptum við á milli okkar kjúklingavængjum með hvítlauks og parmaosti ( sjúklega gott !! ), djúpsteikta mozzarella og hvítlauksbrauð. Allt rosalega gott og við urðum alveg pakksaddar af þessu. Mæli hiklaust með kjúllanum og það er klárt mál að ég mun fara þangað aftur �
verð að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum :( ég panntaði cesar salat og fannst það bara vont. Fór inn rosalega svöng þannig að ég borðaði samt minna en helminginn og vorum samt rukkuð um fullt verð. Kærasti minn var samt ánægður með rifin sem hann fékk og strákurinn sem afgreiddi okkur var almennilegur en hann sagðist ekki meiga lækka reikninginn þrátt fyrir vondann mat.