About

Við keyrum eingöngu ferska gæðavöru heim til þín

Tags : #GroceryStore, #ShoppingRetail, #Shopping&Retail

Location :
Klapparhlíð 7, 270 Mosfellsbær
Contacts :

Description

Fiskur undir steini er lítið fjölskyldufyrirtæki sem fór af stað af því okkur þótti of erfitt að nálgast gæða vörur á góðu verði.

Allur hvítur fiskur er afgreiddur sama dag og hann er keyptur af mörkuðum en við erum einnig með ferskan eldis lax og bleikju. Humar og skötusel erum við með sem frosna vöru.

Við sérhæfum okkur í fersku og hreinu hráefni og það á líka við um kjötið.
Engum aukaefnum er bætt í hakkið hjá okkur og gildir einu hvort um er að ræða fiskhakk eða nautahakk.

Ef þú vilt fá matvælin send til þín á ákveðnum degi þá er best að panta með góðum fyrirvara til þess að tryggja að varan sé til, því eins og gefur að skilja þá liggja fersk matvæli ekki á lager :)

Pantanir og fyrirspurnir berast á heimsending@gmail.com með nafni, símanúmeri og heimilisfangi, við staðfestum móttöku og sjáum um rest.