Það hvellsprakk á bílnum hjá mér seint um kvöld og ekki nokkur leið að bifa skrúfunum til að ná dekkinu undan bilnum. Strax morguninn eftir kom maður á bíl frá Gúmmívinnustofunni með allar græjur til að skipta um dekkið án þess að taka krónu fyrir þessa aukaþjónustu. Mæli hiklaust með þessu fyrirtæki.
Ég bað þá að rótera dekkjum og balansera. Þegar ég er að fara tók ég eftir því að dekkin voru á sama stað og bentu á það. Það var leiðrétt en það kom engin afsökunarbeiðni, og þeir voru frekar fúlir.
Daginn eftir keyrði ég á 80km hraða og allt fór að titra, dekkin voru illa balanseruð. Ég fór aftur og bað um að leiðrétta það. Einu sinni enn engin afsökunarbeiðni né gott viðmót. Niðurstaða: ófagmennska og vanhæfni.
Lélegt viðmót og engin þjónustulund
Góð og fljót þjónusta. Mæli klárlega með!